Humar af pönnunni eða grillinu.

– Humar, halar og gjarnan klær líka.
– Ólífuolía, „extra virgin“.
– Krydd (pressaður ferskur hvítlaukur eða karrýduft).
– Sítrónusafi.
– Hvítvín.

Brjótið blöðkuna af hölunum og takið görnina úr.
Klippið halana svo í tvennt langsum með skærum.
Brjótið klærnar aðeins upp.
Hrærið krydd og sírtónusafa saman við olíuna og penslið halana, eða best; látið hala og klær liggja í olíunni um stund.
Raðið hölunum með „sárið“ upp/skelina niður á grillið og raðið klónum með. Ekki grilla of lengi, rétt láta „kjötið“ hvítna.

Borðist heitt með grænmetissalati og glasi af góðu hvítvíni, gjarnan í góðum félagsskap.