Fyrir 4

400 gr. humar
8 stk. Ferskar grænar lasagnaplötur ca. 10cm x 10cm Soðnar og kældar
100g. Hvítlauks ostur
Rifin ostur
3 cl. (einfaldur) Sambuca
Sítrónusafi úr ½ sítrónu
Salt
1 msk. tómatpure
1/4 ltr. rjómi
2 dl. humarsoð

50 gr. smjör
8 stórir geirar hvítlaukur skorin í sneiðar
6 stórir sveppir skornir í sneiðar
Ca 1/2 purulaukur í sneiðum, skera dökkræna hlutann frá
Rósapipar
Steinselja fínt söxuð

Aðferð: Kraumið grænmetið í smá smjöri og búið til sósu með tómatpúrra, hvítlauksosti og rjóma, þykkið með smá sósujafnara

Smjörsteikið humarhala á heitri pönnu (hita smjörið þar til hættir að krauma, passa að smjörið brenni ekki) dassið með Sambuca ,kreistið sítrónu yfir, setið sósuna saman við og smakkið til með salti.

Raðið pastaplötum og humar í sósu til skiptis, stráið rifnum osti yfir og setið undir heitt grillið í ofninum og látið grillast létt.

Þegar þessi réttur er gerður verður að hafa í huga að ekki má of steikja humarinn því að hann á eftir að fá smá tíma undir grillinu.

Það má bæði hafa þennan rétt í skömmtum eða í einu stóru formi.

Verði ykkur að góðu

Óðinn Eymundsson
Hótel Höfn