-Nettó Humarveisla að hætti Friðriks V. (PDF)
-Djúpsteiking
-Forréttur fyrir jólin
-Grillaðir humarhalar
-Hátíðar humar
-Hátíðarpasta með humri og möndlum
-Humar í hrísgrjónarönd
-Humar í rjómaostasósu
-Humar og skötuselsgrillpinni
-Humar Thermidor
-Humar, steiktur eða grillaður
-Humarfrauð
-Humarlasagna Sambuca
-Humarsalat með cous-cous og graskersfræjum
-Humarsúpa að hætti meistarans
-Humarsúpa með guacamole brauði
-Hvítlauksristaður humar að hætti Kaffi Hornsins
-Ofnbakaður hrísgrjónaréttur með humar og reyktum laxi
-Skötuselskinnar í rjómaostasósu
-Skötuselskinnar í sataya-rjóma
Humarsæla

Það er sannkölluð sæla að borða þennan ljúffenga forrétt. Auðveldlega er hægt að framreiða hann sem aðalrétt; þá er kókosmjöl ristað og hrært saman við hrísgrjónajafninginn, og rétturinn síðan borinn fram með ristuðu brauði. Ekki spillir að drekka hvítvín með.

Hráefni
1.2 kg humar (2 meðalstórir á mann)
1 l Uncle Ben´s instant hrísgrjón, soðin
2 dl rjómi
½ stk Uncle Ben´s Indian Curry í krukku
hvítvín

Sjóðið humarinn í 5-7 mínútur í hvítvíninu. Hrærið saman hrísgrjónum, Indian Curry og rjóma. Hitið að suðu. Skiptið á diska (miðað við 4), setjið tvo humra (í skelinni) ofan á hvern disk. Skreytið með kiwisneið. Einnig er gott að rista kókosmjöl og hræra saman við hrísgrjónajafninginn og bera fram með ristuðu brauði; þá er þetta orðinn aðalréttur. Gott er að drekka hvítvín með þessum rétti.